Fjallvegir víða enn ófærir

mbl.is/Gúna

Vegir eru auðir á Suður- og Suðausturlandi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, en á Suðausturlandi er sums staðar hvasst. Óveður er í Hamarsfirði og sandfok á Skeiðarársandi.

Vestanlands er sums staðar nokkur hálka eða snjóþekja, einkum á fjallvegum. Það er víðast hvar nokkur hálka eða snjóþekja á Vestfjörðum. Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru ófærar en þær ættu að opnast eftir hádegi. Eins er ófært norður í Árneshrepp á Ströndum en þar verður athugað með mokstur á morgun.

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi. Vegurinn um Hólasand er ófær. Þæfingsfærð er á Hófaskarði og skafrenningur. Verið er að moka yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi og einnig Fjarðarheiði. Ófært er á Vatnsskarði eystra og Breiðdalsheiði.

Veður­vef­ur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert