Vegurinn um Holtavörðuheiði hefur hefur verið opnaður eftir að hafa verið lokaður í gær vegna færðar og veðurs. Þar er þó hálka. Vegurinn um Þröskulda er sömuleiðis opinn samkvæmt vefsíðu Vegagerðarinnar en þar er hins vegar þungfært.
Óvíst er með aðstæður á Laxárdalsheiði og Bröttubrekku en vegurinn um Þverárfjall er lokaður. Sama á við um Mývatnsöræfi, Vopnafjarðarheiði, vegina á milli Mývatns og Jökuldals og Fjarðarheiði.