Flug innanlands fram yfir hádegi er á áætlun samkvæmt upplýsingum um Reykjavíkurflugvöll á vef Isavia en allt innanlandsflug lá niðri í gær vegna veðurs. Kannað verður með áætlaðar flugferðir til Egilsstaða eftir klukkan tvö klukkan 9:30.
Veður fer nú batnandi og dregur úr vindinum þegar líður á daginn samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Búist er við annarri lægð á morgun en hún verður hins vegar tiltölulega kraftlítil að sögn Birtu Lífar Kristinsdóttur veðurfræðings.