Vel gekk að koma bifreiðum yfir Holtavörðuheiðina seint í gærkvöldi sem orðið höfðu strandaglópar sitt hvoru mein við heiðina samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi en vegurinn yfir heiðina var lokaður í gær vegna veðurs og færðar. Vegurinn hefur nú verið opnaður aftur.
Frétt mbl.is: Langri bílalest fylgt yfir heiðina
Björgunarsveitarmenn og starfsmenn Vegagerðarinnar fylgdu um 60 bifreiðum sem voru á suðurleið í bílalest yfir heiðina seint í gærkvöldi. Síðan var bifreiðum sem biðu sunnan við heiðina fylgt norður eftir.