Vetrarfærð víða á landinu

Snjóþekja á Hellisheiði, Þrengslum, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálkublettir eru á Grindavíkurvegi, Suðurstrandavegi og víða í uppsveitum Árnessýslu.

Vestanlands eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Bröttubrekku og á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum eru hálkublettir á flestum fjallvegum en greiðfært á láglendi. Ófært er norður í Árneshrepp á Ströndum .

Á Norðurlandi eru hálkublettir mjög víða en hálka er á Þverárfjalli en snjóþekja er á Hólasandi. 

Hálkublettir eru mjög víða á Austurlandi en hálka er á Fjarðarheiði, Möðrudalsöræfum og á Vopnafjarðarheiði.

Hálkublettir og éljagangur eru frá Hvalnesi í Kvísker annars eru vegir greiðfærir á Suðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert