Úrslit ráðast í Skólahreysti í kvöld

Skólar af Suðurnesjum hafa unnið sex síðustu keppnir í Skólahreysti. …
Skólar af Suðurnesjum hafa unnið sex síðustu keppnir í Skólahreysti. Hvað gerist í kvöld?

Úrslit ráðast í Skólahreysti – hreystikeppni grunnskólanna – í kvöld þegar tólf bestu grunnskólar landsins í Skólahreysti keppa til sigurs í Laugardalshöll. Alls tóku yfir 100 grunnskólar þátt í keppninni í ár, sem nú var haldin í tólfta sinn. Sigurvegarar úr tíu svæðisbundnum undankeppnum komust sjálfkrafa í úrslit en auk þess tryggðu tveir skólar sér þátttöku sem náðu bestum árangri í öðru sæti.

 Frítt er inn á keppnina í Laugardalshöll í boði bankans. RÚV sýnir beint frá keppninni og hefst útsending kl. 20.00 í kvöld.

Tólf skólar í úrslitum

Skólarnir tólf sem keppa til úrslita í ár eru: Árskóli á Sauðarkróki, Egilsstaðaskóli, Grundaskóli á Akranesi, Grunnskólinn á Ísafirði, Hagaskóli, Kelduskóli og Laugalækjarskóli frá Reykjavík, Holtaskóli í Reykjanesbæ, Hvolsskóli á Hvolsvelli, Lindaskóli úr Kópavogi, Síðuskóli á Akureyri og Stóru-Vogaskóli úr Vogum.

Skólar af Suðurnesjum hafa unnið sex síðustu keppnir í Skólahreysti. Nemendur Holtaskóla eru ríkjandi Skólahreysti-meistarar en skólinn vann einnig þrisvar í röð árin 2011, 2012 og 2013. Nágrannar þeirra í Heiðarskóla unnu árið 2014.

Keppnisgreinarnar í Skólahreysti eru arm­beygj­ur, dýf­ur, hreystigreip, upphíf­ing­ar og hraðaþraut. Stúlkurnar keppa í armbeygjum og hreystigreip en drengir í upphífingum og dýfum. Tveggja manna lið keppa í hraðaþraut.

Landsbankinn veitir nemendafélögum þriggja efstu skólanna vegleg peningaverðlaun. Keppendur í þremur efstu sætum fá einnig sérstök verðlaun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert