Embætti héraðssaksóknara og ríkissaksóknara hafa lýst sig vanhæf til meðferðar kærumála tveggja manna sem voru sakborningar í LÖKE-málinu, gegn Öldu Hrönn Jóhannesdóttur, yfirlögfræðings á skrifstofu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Frá þessu greinir á vef Ríkisútvarpsins og kemur þar fram að því verði það í höndum innanríkisráðuneytisins að finna löghæfan mann til að rannsaka kærurnar.
Garðar St. Ólafsson, lögmaður mannanna segir þessa stöðu ekki hafa komið upp áður en að væntanlega þurfi að skipa sérstakan héraðssaksóknara og svo, eftir atvikum, sérstakan ríkissaksóknara.
„Þetta ýtir kannski undir það að þörf sé á sjálfstæðri eftirlitsstöfnun með störfum lögreglu og ákæruvaldinu,“ segir Garðar. „Ég vona að þetta valdi ekki mikilli töf og að innanríkisráðherra bregðist fljótt við.“
Annar kærenda er Gunnar Scheving Thorsteinsson lögreglumaður og hinn er fyrrverandi starfsmaður fjarskiptafyrirtækisins Nova.
Mennirnir kærðu Öldu fyrr í mánuðinum fyrir rangar sakargiftir og brot í starfi, og krefjast þeir þess að hún verði svipt embætti og lögmannsréttindum.
Gunnar var sakfelldur í Hæstarétti Íslands fyrir að hafa greint vini sínum frá því á Facebook að hann hafi verið skallaður af ungum dreng við skyldustörf. Gunnari var ekki gerð refsing í málinu en hann var upphaflega grunaður um að hafa flett upp konum í LÖKE og deilt upplýsingum um þær á lokuðum Facebook-hóp með fyrrnefndum starfsmanni Nova og lögmanni.