Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, þekkir ekki til fjárhagstengsla Dorritar Mousaieff eiginkonu sinnar, við foreldra sína eða aðra í fjölskyldu hennar. Þetta kemur fram í skriflegu svari Örnólfs Thorsson forsetaritara við fyrirspurn mbl.is vegna fréttar Reykjavik Media af tengslum Dorritar við aflandsfélög og bankareikninga í Sviss í gegnum fjölskyldu sína.
„Í svari [Ólafs Ragnars] til blaðamanns Guardian fyrr í dag kom fram að hann hefði aldrei heyrt um þau atriði sem nefnd voru í fréttinni né hefði hann nú eða nokkru sinni haft vitneskju um fjárhagstengsl konu sinnar við foreldra sína eða aðra í fjölskyldunni; né um áform foreldra hennar að þeim látnum. Hann vissi því ekkert um málið.
Jafnframt áréttaði forseti að hann hefði ávallt verið mjög gagnrýninn á aflandsfélög og skattaskjól, og í áratugi talað fyrir réttlátu og sanngjörnu skattkerfi,“ segir í svari Örnólfs