Talið er að kveikt hafi verið í geymsluhúsi sem Sandgerðisbær á við Hafnargötu samkvæmt heimildum fréttaritara Morgunblaðsins. Tilkynnt var um eldinn rétt fyrir klukkan sex í morgun. Í húsinu var geymt mikið af jólaskrauti bæjarins, sem og sláttuvélar, sláttuorf og ýmis önnur tæki sem notuð eru til sumarvinnu í bæjarfélaginu.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn, en húsið ásamt öllu því sem í því var er ónýtt.
Brotist var í nótt inn í áhaldahús bæjarins sem er við Strandgötu, á öðrum stað í bænum. Samkvæmt heimildum mbl.is er einnig talið að brotist hafi verið inn í geymsluhúsið og þykir ástand á vettvangi með þeim hætti að líklegt megi telja að kveikt hafi verið í.
Lögreglan á Suðurnesjum tjáir sig ekki um málið að öðru leyti en því að málið sé í rannsókn.