Bauð Obama í Íslandsheimsókn

Leiðtogar Norðurlandanna og Obama í dag.
Leiðtogar Norðurlandanna og Obama í dag. AFP

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra sátu í dag leiðtogafund Norðurlandanna og Bandaríkjanna í Hvíta húsinu í boði Baracks Obama forseta Bandaríkjanna. Á fundinum var rætt um samvinnu Bandaríkjanna og Norðurlandanna á ýmsum sviðum.

Frétt mbl.is: Góðar móttökur í Hvíta húsinu

Á meðal umræðuefna voru öryggis- og varnarmál, barátta gegn hryðjuverkum og aðgerðir gegn öfgahyggju, fólksflutninga- og flóttamannavandinn, loftslagsmál, samstarf í málefnum norðurslóða, viðskiptamál auk þróunar- og mannúðarmála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Samþykktu leiðtogarnir yfirlýsingu um þessi málefni sem lesa má hér.
 
Forsætisráðherra Íslands stjórnaði umræðu um þróunar- og mannúðarmál. Hann lagði meðal annars áherslu á mikilvægi framkvæmdar nýsamþykktra heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og benti á að aðgerðir heima fyrir væru undirstaða þess að ná  þeim. Þá minnti forsætisráðherra á að þótt aldrei hafi verið veitt meira fjármagni til mannúðarmála, væri þörfin meiri en nokkru sinni fyrr. Þá undirstrikaði forsætisráðherra mikilvægi samstarfs ríkjanna í öryggis- og varnarmálum.  

Einnig áttu forsætisráðherra og Barack Obama samtal og í lok þess bauð forsætisráðherra forsetanum að sækja Ísland heim hvenær sem kynni að henta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert