Slökkvistarfi er lokið í iðnaðarhúsnæðinu við Vesturvör 30B í Kópavogi, þar sem eldur kom upp í nótt, og fékk rannsóknarlögreglan aðgang að brunavettvanginum nú klukkan 11.30.
Formlegu slökkvistarfi lauk um klukkan hálfátta í morgun, en nokkrir slökkviliðsmenn urðu eftir á staðnum á brunavakt til að ganga frá og slökkva í glæðum sem talið var að leynst gætu í húsinu.
Eldsupptök eru ókunn.