Bilun kom upp í flugvél Icelandair sem átti að fljúga til Gautaborgar skömmu eftir miðnætti í nótt. Vélinni var lent aftur á Keflavíkurflugvelli 20–25 mínútum eftir flugtak en vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra gat hún ekki haldið för sinni áfram eftir það.
Vélin lagði af stað frá Keflavík kl. 00:10. Blaðamaður mbl.is sem var um borð í vélinni segir að hann hafi fengið þær upplýsingar að skömmu eftir flugtak hafi mælar sýnt að vinstri vængur Öskju, flugvélar Icelandair, væri að missa olíu. Því var lent aftur í Keflavík um klukkan eitt og litu flugvirkjar á vélina.
Vegna yfirvinnubannsins var hins vegar flug um flugvöllinn takmarkað við sjúkra- og neyðarflug á milli klukkan tvö og sjö í morgun. Ástæða takmörkunar var sú að tveir flugumferðarstjórar sem áttu að vera á vaktinni í nótt voru veikir og vegna yfirvinnubannsins fengust ekki flugumferðarstjórar til afleysinga. Vélin fór því ekki lengra.
Unnið var að því að koma farþegum vélarinnar í aðrar flugferðir. Blaðamaður mbl.is segir að honum verði komið í ferð til Stokkhólms kl. 8 og þaðan áfram til Gautaborgar.
Ferðum Icelandair til og frá Gautaborg í dag hefur verið aflýst.