Erlent par hafði samband við Neyðarlínuna á tólfta tímanum í gærkvöldi og óskaði aðstoðar. Kvaðst það vera komið í sjálfheldu í Nesskriðum við austanverðan Siglufjörð.
Um var að ræða ferðamenn sem höfðu komið fótgangandi úr Héðinsfirði og ætluðu til Siglufjarðar. Þarna er bratt fjalllendi niður í sjó og aðkoma að fólkinu því afar erfið.
Lögreglumenn á Tröllaskaga óskuðu eftir aðstoð björgunarsveita og komu sveitir frá Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri til að sinna verkefninu. Alls tóku 30 til 40 björgunarsveitarmenn þátt í aðgerðinni ásamt lögreglu.
Björgunaraðilar voru fluttir á bátum að fjallinu. Þar var notaður dróni til að kanna aðstæður og velja uppgönguleið. Aðstæður reyndust vera það erfiðar að íhugað var að fá þyrlu til aðstoðar. Þó var ákveðið að reyna landleiðina fyrst.
Þá tók við erfið klifur- og línuvinna og komust fyrstu menn að fólkinu um kl. 2 í nótt. Það var svo um fimmleytið sem komið var með fólkið að landi á Siglufirði. Maðurinn er 35 ára og konan 31 árs. Þau voru ómeidd en mjög brugðið eftir þessa erfiðu lífsreynslu, að því er lögreglan á Norðurlandi eystra greindi frá.