Von á góðu veðri í Kvennahlaupinu

Frá Kvennahlaupinu í fyrra.
Frá Kvennahlaupinu í fyrra. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Á laugardaginn fer fram hið árlega Sjóvá vennahlaup ÍSÍ í 27. sinn. Hlaupið verður á yfir 100 stöðum hérlendis og erlendis. Eins og venjulega má búast við að þúsundir kvenna komi saman til að njóta hreyfingar og góðs félagsskapar. 

Ekki spillir veðurspáin en það stefnir í sólskin og allt að 20°C hita á landinu á laugardaginn.

„Það er alltaf gaman í Sjóvá kvennahlaupi ÍSÍ, hvernig sem veðrið er,“ er haft eftir Sigríði Ingu Viggósdóttur, sviðstjóra almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í tilkynningu frá ÍSÍ. „En það spillir síður en svo fyrir að fá svona spá. Það er eins og við höfum pantað þetta veður.“

Síðustu daga hefur verið minnt á hlaupið með frumlegu uppátæki í Kringlunni. Sérhannaður „hvatningarbúnaður“ var settur upp á stigagangi Kringlunnar til að hvetja fólk til að velja tröppurnar frekar en lyftu eða rúllustiga. Fjölmargir tóku áskoruninni, en með þessum hætti var bæði vakin athygli á Sjóvá kvennahlaupi ÍSÍ og vegfarendur voru minntir á að hreyfing er holl og skemmtileg fyrir alla.

Á www.kvennahlaup.is geta hlauparar fundið hlaupastaði sem hentar hverjum og einum. Engin skráning er í hlaupið en þátttökugjaldið er greitt með því að kaupa Kvennahlaupsbol, annaðhvort í forsölu eða á hlaupadag. Þátttökugjaldið er 1000 kr. fyrir 12 ára og yngri og 2000 kr. fyrir 13 ára og eldri. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands og Sjóvá, aðalstyrktaraðili hlaupsins, hvetja allar konur til þess taka þátt.

Svona lítur spáin út í hádeginu á laugardaginn.
Svona lítur spáin út í hádeginu á laugardaginn. Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert