Lögreglumaðurinn sem vikið var úr starfi vegna rannsóknar héraðssaksóknara á máli hans hefur verið boðaður til starfa á ný.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér. Þar segir að mál embættis héraðssaksóknara gegn starfsmanni embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi verið fellt niður.
„Að mati héraðssaksóknara hefur ítarleg rannsókn á meintum brotum umrædds starfsmanns ekkert leitt í ljós sem renni stoðum undir það að hann hafi með einhverjum hætti gerst brotlegur í starfi. Embættið fagnar niðurstöðu málsins og hefur starfsmaðurinn þegar verið boðaður aftur til starfa,“ segir í tilkynningunni.
Lögreglumaðurinn var leystur frá störfum um miðjan janúarmánuð vegna málsins, en hann hafði áður verið fluttur til í starfi innan lögreglunnar vegna ásakana um hvernig samskiptum hans við brotamenn væri háttað.
Fréttir mbl.is um málið:
Lögreglustjóri brást of hart við
Niðurstaðan líklega ekki véfengd
Mál gegn lögreglumanni fellt niður