Íslenska ríkið þarf að loka NA-/SV-flugbraut, sem stundum er nefnd neyðarbraut, á Reykjavíkurflugvelli innan 16 vikna. Þetta var niðurstaða Hæstaréttar, en með dómnum var að mestu leyti dómur héraðsdóms frá í mars á þessu ári staðfestur. Fimm dómarar Hæstaréttar dæmdu málið.
Reykjavíkurborg hafði höfðað mál á hendur innanríkisráðunyetinu vegna ákvörðunar ráðherra um að neita að loka NA-SV-brautinni, en hún er betur þekkt sem neyðarbraut vallarins. Héraðsdómur hafði komist að þeirri niðurstöðu að Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, hafi verið heimilt að gera samkomulag við borgina árið 2013 og láta af hendi landsvæði sem væri í eigu ríkisins og brautin er á.
Þetta þýðir í raun að Valsmenn hf., sem hafa fengið framkvæmdaleyfi og hafið framkvæmdir á Hlíðarendasvæðinu, geta haldið áfram með framkvæmdir sínar án þess að eiga á hættu að uppbygging þar skarist á við aðflug að neyðarbrautinni.