Miðasala á leik Íslands og Englands á EM á mánudaginn hefst kl. 12 í dag að íslenskum tíma. Röðin opnar kl. 11.45 og fer öll miðasalan fram í gegnum miðasöluvef UEFA. Þetta kemur fram á Facebook-síðu KSÍ.
Leikurinn fer fram í Nice í Frakklandi á mánudag.
„Röðin í miðasöluna á vef UEFA opnar kl. 11:45 og er um að ræða „fyrstir koma, fyrstir fá“-fyrirkomulag. Söluglugginn er opinn öllum, Íslendingum jafnt sem knattspyrnuáhugafólki frá öðrum löndum,“ segir í færslunni.