Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í dag skýrslu nefndar um málefni Mývatns fyrir ríkisstjórn og þær tillögur sem í henni koma fram. Frá þessu greinir upplýsingafulltrúi ráðuneytisins í samtali við mbl.is. Viðbrögð ríkisstjórnar við skýrslunni voru jákvæð og var ráðuneytinu falið að vinna áfram og útfæra þær tillögur sem þar koma fram.
Umhverfisráðherra skipaði starfshóp um málefni Mývatns í maí síðastliðnum og vann hópurinn skýrsluna um ástand vatnsins með ábendingum um mögulegar aðgerðir til að draga úr neikvæðum áhrifum.
Frétt mbl.is: Minnka þarf álagið á Mývatn