Miðar sem athafnamaðurinn Björn Steinbekk seldi stuðningsmönnum íslenska landsliðsins fyrir leikinn gegn Frakklandi sem fram fór í París í gær komu ekki frá UEFA, Knattspyrnusambandi Evrópu. Þetta staðfestir fjölmiðlafulltrúi UEFA í samtali við mbl.is.
Eins og fjallað hefur verið um sátu tugir Íslendinga eftir með sárt ennið í París í gær þegar þeir fengu ekki miðana sína afhenta þrátt fyrir að hafa borgað fyrir þá. Björn hafði selt nokkur hundruð miða á leikinn, sem fram fór á Stade de France, en hluti þeirra sem keypt höfðu miða af honum komst aldrei inn á leikvanginn.
Frétt mbl.is: „Svik, skipulagsleysi og barnaskapur“
„Við höfum ítrekað brýnt fyrir almenningi að einungis sé hægt að kaupa miða á vef okkar, UEFA.com. Miðar sem eru ekki keyptir þaðan eru falsaðir eða ógildir,“ sagði fjölmiðlafulltrúi UEFA.
RÚV sagði frá því að Björn hafi fengið tölvupóst sem undirritaður var af „Nicole“ sem sagðist vera framkvæmdastjóri miðasölu hjá UEFA. Í tölvupóstinum var hvorki eftirnafn né netfang hjá henni, og aðspurður segir fjölmiðlafulltrúi UEFA að engin Nicole starfi við miðasöluna.
Þá kemur fram í póstinum að milligöngumaður Björns sé Gaetano Marotta, framkvæmdastjóri Gama sport. Mbl.is hefur reynt að ná sambandi við Marotta án árangurs.
Björn sagði í viðtali við RÚV í morgun að hann hafi verið svikinn af miðasölustjóra hjá Knattspyrnusambandi Evrópu. Hann hafnaði því að miðarnir sem hann seldi hafi verið falsaðir eða fengnir með ólöglegum leiðum.
Ólafur Árni Hall og kærasta hans, Erla Dögg Aðalsteinsdóttir, voru á meðal þeirra sem lentu í miðasvikunum, en Ólafur sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að um hafi verið að ræða „svik, skipulagsleysi og barnaskap“.
Parið keypti miða í gegnum vefsíðuna netmidi.is af Kristjáni Atla Baldurssyni, en hann hafði keypt 100 miða og skipulagt ferð með leiguflugi frá Akureyri til Frakklands. Miðana keypti hann af Birni Steinbekk og borgaði fyrir þá 5,3 milljónir króna.