Lúsmý sem herjaði á landann síðasta sumar hefur aftur látið á sér kræla í ár. Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, segir lúsmýið á svipuðum slóðum í ár og það var í fyrra, en ekki sé sama sprengja í fjölgun þess nú og var þá.
Frétt mbl.is: Lúsmý herjar á Ísland
„Það er vegna þess að sumarið í fyrra kom allt í einu. Það var ekki fyrr en í lok júní sem það fór að verða flugveður fyrir skordýr. Þá komu þær allar í einu, en núna kom þetta fyrr og jafnar inn og fjöldinn ekki eins gríðarlegur.“ Erling segir heildarfjöldann vera svipaðan og í fyrra, en í ár dreifist hann betur. „Það eru ekki allir að ryðjast inn á völlinn samtímis, það er ekki eins og það sé verið að opna inn á fótboltaleik í ár. Það var þannig í fyrra.“
Lúsmýið var ekki að nema land hér í fyrra og er að öllum líkindum komið til vera, en veðurfar síðasta árs er líkleg ástæða þess mikla fjölda sem braust fram í fyrra. Lúsmýið er þó enginn nýliði í skordýrafánu landsins. „Þetta byrjaði ekkert í fyrra, það voru bara einstakar aðstæður sem gerðu það að verkum að þetta uppgötvaðist. En núna vitum við hvað er að gerast. Þetta sést andskotann ekkert, það er vandamálið. Menn hafa verið bitnir fram að þessu en án skýringar.“
Frétt mbl.is: Ráðleggingar um mý og mýbit
Húðlæknastöðin hefur á vef sínum ýmsan fróðleik tengdan mýbitum. Flest bendir til þess að ekki sé neinn munur á því hve oft fólk er bitið heldur hvernig þeir sem eru bitnir svara bitinu. Þeir sem svara bitum heiftarlega hafa myndað eins konar ofnæmi gegn eggjahvítuefnum sem mýið skilur eftir í húðinni. Algengustu einkennin eru rauðar bólur eða hnútar sem fólk klæjar í.
Í flestum tilvikum ganga einkennin yfir á nokkrum dögum en ef viðkomandi einstaklingur er með slæmt ofnæmi geta myndast blöðrur í húðinni. Ef bitin eru mörg eða svörunin kröftug getur fylgt því slappleiki eða hiti.