Maðurinn sem lést í árekstri bifhjóls og vörubifreiðar á Reykjanesbraut í gær hét Jóhannes Hilmar Jóhannesson, til heimilis að Sóltúni 2 í Garði. Hann var 34 ára gamall, fæddur árið 1982. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og þrjú börn.
Tilkynnt var um umferðarslys á mótum Reykjanesbrautar og Hafnavegar í Reykjanesbæ til lögreglu klukkan 7.09 í gærmorgun. Bifhjólinu hafði verið ekið suður Reykjanesbraut og vörubifreiðin var á leið af Hafnavegi norður Reykjanesbraut þegar slysið varð. Jóhannes Hilmar var úrskurðaður látinn á slysstað.
Frétt mbl.is: Ökumaður bifhjólsins lést