Fyrsta samstarfið við Netflix

Margrét Jónsdóttir og Dylan Howitt ræða við Ragnar Aðalsteinsson hrl. …
Margrét Jónsdóttir og Dylan Howitt ræða við Ragnar Aðalsteinsson hrl. við meðferð endurupptökumálsins í héraðsdómi. mbl.is/Árni Sæberg

Heim­ild­ar­mynd um Guðmund­ar- og Geirfinns­málið verður frum­sýnd á fyrstu mánuðum næsta árs, en Sagafilm vinn­ur um þess­ar mund­ir að fram­leiðslu henn­ar ásamt BBC, RÚV og banda­rísku efn­isveit­unni Net­flix.

Mynd­in mun bera nafnið „OUT OF THIN AIR“ og Ólaf­ur Arn­alds sem­ur tónlist fyr­ir hana. Nú þegar hafa verið tek­in upp viðtöl við fólk sem viðkem­ur mál­un­um, enn er þó eft­ir að taka viðtöl við fleiri sem þekkja til máls­ins, að sögn Mar­grét­ar Jón­as­dótt­ur, fram­leiðanda hjá Sagafilm.

Alls koma um 20 manns að fram­leiðslunni á einn eða ann­an hátt og tveir þriðju hlut­ar þeirra eru Íslend­ing­ar. Mynd­in er sú fyrsta á Íslandi sem Net­flix fjár­fest­ir í á fram­leiðslu­stigi, að því  er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka