Neyðarboð frá Ófeigsfjarðarheiði

Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á Ófeigsfjarðarheiði.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á Ófeigsfjarðarheiði. Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á Ófeigsfjarðarheiði á norðanverðum Vestfjörðum eftir að boð barst frá neyðarsendi.

Að sögn Landhelgisgæslunnar er óvíst hvort þyrlan geti athafnað sig á svæðinu vegna veðurs.

Björgunarsveitir eru einnig á leiðinni á vettvang.

Að sögn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar er ekki vitað hver sendi út neyðarboðin.

Spáð er versnandi veðri á heiðinni þegar líða fer á daginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka