Kindur fórnarlömb ferðamanna

Umferðin á Suðurlandi leikur íslensku sauðkindina grátt.
Umferðin á Suðurlandi leikur íslensku sauðkindina grátt. mbl.is/Jónas Erlendsson

Ekki njóta allir góðs af auknum straumi ferðamanna til landsins, en líklega koma fáir verr út úr honum en íslenska sauðkindin. Tilvikum þar sem ekið er á búfé hefur fjölgað mikið á síðustu árum og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi eru það aðallega ferðamenn sem lenda í því að aka á kindur.

Frétt mbl.is: Reglulega keyrt á sauðfé

Í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi, sem nær frá Árnessýslu austur í Austur-Skaftafellssýslu, hafa 77 kindur drepist í umferðarslysum það sem af er ári. Langverst er ástandið í Austur-Skaftafellssýslu, þar sem 57 kindur hafa drepist á árinu, en í fyrra voru þær 117 og 115 árið 2014. Árið 2013 voru þær hins vegar ekki nema 87 og aukningin því 25% í sýslunni frá 2013–2015.

Samkvæmt skýrslu um sauðfé á þjóðvegi 1 í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi, er enginn afréttur í Austur-Skaftafellsýslu og sauðfé gengur því að mestu leyti í eignarlandi og stutt sé á milli fjalls og fjöru. Þá eru engar girðingar á um 75% leiðarinnar í gegnum sýsluna, sem er rúmlega 200 km.

Í skýrslunni kemur fram að rúmlega 21.000 ær og lömb séu í Austur-Skaftafellssýslu og hefur því verið ekið á rúmlega eina af hverjum 200 kindum þar á síðustu tveimur árum. Það sem af er ári hefur að meðaltali verið ekið á 1,43 ær í hverju tilviki, en á síðustu tveimur árum hefur sú tala verið 1,3. Í einu tilviki í A-Skaftafellssýslu á þessu ári var ekið á sjö lömb í einu.

Þá segir að ætla megi að ekki séu öll tilfelli tilkynnt en trúlega flest. Ljóst er að gríðarlegt eignartjón, bæði á bústofni og ökutækjum fylgi óhöppunum. Umferð hafi aukist um tugi prósenta á undanförnum árum og stærstur hluti vegfarenda sé erlendir ferðamenn, sem ekki hafi reynslu að því að aka við íslenskar aðstæður.

Mikið hefur verið rætt um þetta vandamál í Austur-Skaftafellssýslu undanfarið og varð það meðal annars til þess að girt var meðfram þjóðvegi í Nesjum og lausaganga búfjár bönnuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert