Leit að frönskum ferðamanni sem féll ofan í á í Sveinsgili í gær stendur enn yfir og verður haldið áfram fram eftir kvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá svæðisstjórn Landsbjargar verður líklega leitað til miðnættis og svo haldið áfram klukkan átta í fyrramálið.
Eins og fyrr hefur komið fram er talið að maðurinn hafi runnið undir snjódyngju yfir ánni og hafa störf björgunarmanna að mestu leyti snúist um að moka snjó. Alls hafa 218 manns tekið þátt í leitinni fram að þessu.
Að sögn Margrétar Ýrar Sigurgeirsdóttur í svæðisstjórninni tekur á morgun við nýtt og ferskt fólk í leitinni en hún hefur eins og kunnugt er tekið töluvert á. Bendir hún á að erfitt sé að komast að leitarsvæðinu á bílum og þurfa björgunarmenn að ganga 30–40 mínútur frá bílum að staðnum. Þá tekur við stöðugur mokstur.
Hún segir veður fínt á leitarsvæðinu en vatnavexti að aukast. Er töluvert betra veður í nótt þegar það var rigning og lítið skyggni en það hefur haldist þurrt að mestu í dag.