Með meint fíkniefni í súkkulaðieggi

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Í almennu umferðareftirliti við Hvolsvöll á laugardag stöðvaði lögreglan á Suðurlandi ökumann fólksbíls. Ástæða þótti til að kanna hvort farþegi væri með fíkniefni. Hann heimilaði leit á sér og í vasa hans fannst lítið súkkulaðiegg sem innihélt hvítt duft sem grunur lék á að hafi verið fíkniefni. Efnið var haldlagt og verður sent í rannsókn. Maðurinn var yfirheyrður og látinn laus að því loknu.

Aðfaranótt sunnudags voru þrír menn í bifreið handteknir á Suðurlandsvegi við Landvegamót. Ökumaður var grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna en auk þess var grunur um að fíkniefni væru í bifreiðinni. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu á Selfossi og þeir síðar yfirheyrðir. Í bifreiðinni fundust um 20 grömm af kókaíni og nokkrar óþekktar töflur. Ökumaður sagði rangt til nafns og allir neituðu að eiga efnin en voru meðvitaðir um hvaða efni væri um að ræða. Þremenningarnir voru látnir lausir að loknum yfirheyrslum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka