Íslendingalið Crossfit XY keppti í þremur þrautum á heimsleikunum í crossfit í Los Angeles í dag. Eftir daginn er liðið í 31. sæti í heildarkepninni en það var í þvi þrítugasta í byrjun dags.
Þrautir dagsins voru mjög fjölbreyttar og fólust meðal annars í tvöföldum sippum (e. double unders), hnébeygjum og spretthlaupum.
Liðið hafnaði í 31. sæti í fyrstu tveimur þrautum dagsins en í því 29. í síðustu þrautinni.
Keppnin heldur áfram á morgun.
Liðið skipa þau Árni Björn Kristjánsson, Hilmar Arnarson, Hjördís Óskarsdóttir, Sigurður Þrastarson, Sólveig Sigurðardóttir og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir. Varamenn eru þau Ingimar Jónsson og Sandra Helgadóttir.
Danska liðið Crossfit Nordvest, sem tveir Íslendingar keppa með, er í ellefta sæti liðakeppninnar.