Guðni Th. Jóhannesson tekur við embætti forseta Íslands í dag, eftir að Ólafur Ragnar Grímsson lét af embætti forseta á miðnætti í gær. Mikill mannfjöldi er nú samankominn á Austurvelli þar sem athöfnin hófst klukkan þrjú með því að Lúðrasveit Reykjavíkur lék ættjarðarlög.
Um hálffjögur munu svo forseti Íslands og föruneyti ganga að Dómkirkjunni þar sem helgistund verður haldin í umsjá biskups Íslands, frú Agnesar M. Sigurðardóttur.
Að helgistundinni lokinni verður haldið í alþingishúsið á ný þar sem Guðni Th. Jóhannesson verður svarinn í embætti sem sjötti forseti lýðveldisins.