MMR hefur með reglulegu millibili kannað ánægju Íslendinga með störf Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta Íslands. Í síðustu könnun sem framkvæmd var dagana 15. til 22. júlí kom í ljós að almennt ríkir ánægja með störf forseta, en 62,4% þátttakenda kváðust vera ánægð með störf Ólafs Ragnars Grímssonar og í síðustu könnun þar á undan (sem lauk 4. júlí), sögðust 64,7% vera ánægð með störf forsetans.
Þegar þróun á ánægju með störf forsetans er skoðuð yfir tíma má sjá að ekki hafa jafn margir kvaðst ánægðir með störf forsetans síðan í byrjun árs 2013, skömmu eftir að dómur hafði verið kveðinn upp í Icesave málinu. Það má því segja að Ólafur Ragnar Grímsson endi á toppnum.
Ánægja með störf Ólafs Ragnars sem forseta Íslands reyndist mismunandi eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Þau sem að studdu ríkisstjórnarflokkana (Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkinn) mældust mun ánægðari með störf forseta en þeir þau sem studdu aðra stjórnmálaflokka. Þannig sögðust 87,9% þeirra sem studdu Framsóknarflokkinn og 81,4% þeirra sem studdu Sjálfstæðisflokkinn vera ánægð með störf Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta Íslands. Þeir sem að studdu Samfylkinguna, Vinstri-græn og Viðreisn voru aftur á móti ólíklegri til að segjast ánægð með störf forsetans. Þannig sögðust 38,4% þeirra sem studdu Samfylkinguna, 43,7% þeirra sem studdu Viðreisn og 48,3% þeirra sem studdu Vinstri-græn vera ánægð með störf Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta Íslands.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 907 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 15. til 22. júlí 2016