Biðja fólk að vera ekki á ferli

Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld. mbl.is/Freyja Gylfadóttir

Fólk er beðið að vera ekki á ferli í Fellahverfi í Breiðholti þar sem aðgerðir lögreglu standa nú yfir eftir að tilkynnt var um tvo byssuhvelli fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt upplýsingum mbl.is er meints skotmanns leitað en ekki er vitað til að neinn hafi orðið fyrir skoti.

Tilkynningu lögreglunnar má lesa í heild hér að neðan:

„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra standa nú fyrir aðgerðum í Fellahverfi í Breiðholti, en tilkynnt var um tvo skothvelli í hverfinu um hálfníuleytið í kvöld. Tilkynningin var tekin alvarlega og var viðbúnaður lögreglu í samræmi við það og fólst m.a. í að lokað var fyrir umferð um svæðið. Enn er unnið að því að upplýsa málið og því er ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Fólk er beðið um að vera ekki á ferli í hverfinu á meðan aðgerðir lögreglu standa yfir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert