Nítján ára piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 19. ágúst að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Var það gert á grundvelli almannahagsmuna.
Pilturinn er grunaður um tvö kynferðisbrot, annað á höfuðborgarsvæðinu en hitt á Suðurnesjum. Hann hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar.
Rannsókn málsins miðar vel, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Frétt mbl.is: 19 ára grunaður um tvær nauðganir
Fréttatíminn greindi frá því í gær að pilturinn væri nítján ára og grunaður um tvær nauðganir. Brotin framdi hann með nokkurra daga millibili.
Fyrra málið kom upp í lok júlí en fór Lögreglan á Suðurnesjum, þar sem brotið mun hafa átt sér stað, þá ekki fram á gæsluvarðhald.
Seinna málið kom upp á höfuðborgarsvæðinu sex dögum síðar og fór Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þá fram á gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.