Lögreglan leitar tveggja manna og ökutækis

Lögreglan lokaði nokkrum götum í Breiðholti í kvöld vegna málsins.
Lögreglan lokaði nokkrum götum í Breiðholti í kvöld vegna málsins. Mbl.is/Freyja Gylfadóttir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja manna og ökutækis í kjölfar aðgerða hennar og sérsveitar ríkislögreglustjóra í Fellahverfi í Breiðholti í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Frétt mbl.is: Sá tösku fulla af vopnum

Frétt mbl.is: Heyrði skothvelli í Iðufelli

„Tilkynnt var um tvo skothvelli í hverfinu um hálfníuleytið í kvöld, líkt og fram hefur komið, en að sögn vitna var skotið á bifreið á svæðinu. Tvímenningarnir eru grunaðir um að hafa staðið fyrir því og er þeirra leitað. Bifreiðin, sem skotið var á, er sömuleiðis ófundin og einnig þeir sem í henni voru, en ekki er vitað hvort hinir sömu hafi slasast. Lögreglan hvetur þá sem voru í bifreiðinni til að gefa sig fram, sem og mennina tvo sem grunur leikur á að hafi verið þar að verki,“ segir í tilkynningunni.

Lögreglan telur að atvikið í Fellahverfi tengist deilum innan þröngs hóps og að það beinist ekki að almenningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert