Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur karlmönnum fæddum 1988 og 1987 vegna rannsóknar á skotárás í Iðufelli í Breiðholti síðastliðinn föstudag.
Annar hefur sætt gæsluvarðhaldi frá því á laugardag en hinn frá því á mánudag og rennur það út í dag. Nú er farið fram á gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna.
Karlmennirnir tveir eru báðir íslenskir ríkisborgarar en af erlendu bergi brotnir. Mennirnir hafa báðir komið við sögu hjá lögreglu áður.
Annar maðurinn 28 ára, hinn 29 ára