Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Elvu Brá Þorsteinsdóttur. Elva Brá, sem er 26 ára og glímir við veikindi, er 165 cm á hæð, grannvaxin með ljóst sítt hár. Hún var klædd í svartar buxur og bláa íþróttatreyju, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Upplýsingar um Elvu Brá berist til lögreglu í síma 444 1000.
Uppfært 20:37