Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Björn Þór Hermannsson til að gegna embætti skrifstofustjóra skrifstofu opinberra fjármála, frá 1. september næstkomandi.
Björn Þór lauk B.Sc-prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í fjármálahagfræði frá sama skóla árið 2010. Hann hefur starfað í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá 2011 en áður starfaði hann í velferðarráðuneytinu, að því er kemur fram í tilkynningu.
Björn hefur frá árinu 2014 verið staðgengill skrifstofustjóra. Embættið var auglýst í júní síðastliðnum og sóttu þrettán um.