Yfirheyrslur standa yfir vegna rannsókn lögreglunnar á Vestfjörðum á meintri framhjálöndun í Bolungarvík. Sem stendur beinist grunur lögreglu að einu máli.
Allur afli sem komið er með að landi á að fara á vigt en talið er að svo hafi ekki verið í þessu tilviki. Hinn 23. ágúst óskaði starfsmaður Fiskistofu eftir aðstoð lögreglunnar vegna gruns um framhjálöndun.
Frétt mbl.is: Lögreglan rannsakar framhjálöndun