Féll niður fjóra til fimm metra

Slökkviliðið var kallað að Hafnartorgi í dag.
Slökkviliðið var kallað að Hafnartorgi í dag.

Vinnuslys varð við Hafnartorg í miðbæ Reykjavíkur um fjögurleytið í dag. Þar var maður að störfum við grunninn hjá Kolaportinu þegar hann féll niður fjóra til fimm metra.

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var maðurinn fluttur á slysadeild en ekki er vitað um meiðsli hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert