„Sjórinn er mitt umhverfi“

Birna reynir að fara í sjósund að minnsta kosti í …
Birna reynir að fara í sjósund að minnsta kosti í 3-4 sinnum á viku.

Í köldum sjó líður Birnu Hrönn Sigurjónsdóttur best. Tengsl við náttúruna og vellíðan bæði andleg og líkamleg er það sem dregur hana ofan í sjóinn. Hún hefur tekið þátt í flestum skipulögðum sjósundum hér á landi.

Á morgun tekur hún þátt í boðsundi upp Golfstrauminn í Murmansk í Rússlandi fyrir hönd Íslands. Þar mun hún synda um 1,2 km í sjó sem er um fimm gráður.

„Ég hlakka bara til. Um leið og ég kemst ofan í sjóinn er ég róleg. Sjórinn er mitt umhverfi og þar líður mér vel. Ég er líka með fínt kuldaþol,“ segir Birna Hrönn Sigurjónsdóttir sem tekur þátt í alþjóðlegu boðsundi upp Golfstrauminn á laugardaginn í Murmansk í Norður-Rússlandi fyrir Íslands hönd. Hún syndir um 1,2 km, í um fimm til sjö gráðu köldum sjó en um 40 sundmenn ljúka boðsundinu í Murmansk. Boðsundið er liður í stórri íþróttahátíð í borginni.

Strangar reglur gilda um sjósundskeppni af þessu tagi. Til að mega taka þátt þarf að sýna læknisvottorð og hjartalínurit sem sýnir að þátttakandinn geti synt í sjó sem er undir fimm gráðum. Sundföt, sundhetta og sundgleraugu eru eini búnaðurinn sem er leyfilegur en hvorki vettlingar né sundskór eru leyfðir.

Ísmílan það heitasta í dag

Birna Hrönn er mikil sundgarpur og er enginn nýgræðingur í sjósundi en hún hefur synt í öllum helstu sjósundum sem hafa verið skipulögð hér á landi undanfarið, t.d. sundi út í Viðey, Drangey og Hrísey svo fátt eitt sé nefnt.

Í apríl tók hún þátt í svokallaðri Ísmílu sem haldin var í fyrsta skipti hér á landi en þar er synt ein míla eða 1,6 km í sjó sem er undir 5 gráðum. Þegar sundið var haldið hér á landi var sjórinn 3,6 gráður. Birna Hrönn var önnur af tveimur sem kláruðu sundið. „Ísmílan er það heitasta í dag eða kaldasta,“ segir hún og hlær. Ísmílan (Ice Mile) er eitt erfiðasta sjósund í heimi og þótti henni sundið ekki ýkja erfitt þó það hafi reynt töluvert á. Birna Hrönn er vel tengd inn í sjósundsheiminn hér á landi og einnig erlendis en hún er t.d. fulltrúi Alþjóðlegu íssundssamtakanna hér á landi.

Í sumar fór Birna Hrönn um fjöll og firnindi og dýfði sér í ár og vötn og gljúfur og fossa til að vaða og synda í. Hún er því nokkuð vel undirbúin fyrir komandi átök á laugardaginn. Hún er mikið fyrir útivist og jaðaríþróttir og viðurkennir að sér þyki gaman að ögra sjálfri sér, sérstaklega í náttúrunni.

„Tengslin við náttúruna. Þegar ég fer ofan í sjóinn fer í ég ofan í náttúruna. Ég upplifi líka mikið frelsi við að synda í sjónum. Þetta er líka mikið ævintýri því maður rekst oft á ýmisleg dýr,“ segir hún spurð hvað heilli mest við sjósundið. Henni líkar betur að synda í sjónum en í ferskvatni en hún tekur fram að í vatni líði sér best. Kuldinn er einnig það sem dregur hana ofan í vatnið.

Birna Hrönn hefur synt mikið í gegnum tíðina í sundlaugum en byrjaði ekki að stunda sjósund fyrr en árið 2009. „Mig hafði lengi langað að prófa sjósund en hafði ekki kjarkinn í það. Vinkona mín stundaði þetta og ég fór með henni. Eftir fyrsta skipi varð ekki aftur snúið og ég er bara búin að vera í sjónum síðan,“ segir hún og bætir við að hún nýti alltaf tækifærið þegar hún ferðast um landið að stinga sér í sjóinn.

Í sjóinn 3 til 4 sinnum í viku

„Ef ég fer í sjóinn þrisvar til fjórum sinnum í viku, þá er líkamleg og andleg heilsa góð. Ég verð miklu rólegri. Það er mikil endorfínlosun að synda í sjónum. Þetta núllstillir mig. Sjórinn er svo kaldur að þú getur ekki hugsað um neitt annað en núið. Þú getur ekki planað framtíðina, velt fyrir þér hvað þú ætlar að hafa í matinn o.s.frv. því öll orkan fer í sundið. Þú færð frið og frelsi frá öllum áhyggjum og vandamálum,“ segir hún, spurð út í áhrifin af sjósundinu.

Hún stundar sjósund helst í Nauthólsvíkinni og þar hefur hún kynnst mörgu góðu fólki. Hún segir hópinn sem hittist þar reglulega einstaklega hressan.

„Það eru allir svo fullir af endorfíni að enginn talar um neitt leiðinlegt,“ segir hún og hlær. Hún segir að hópurinn og fólkið sem hún hefur kynnst þar eigi stóran þátt í því að hún er að fara í þetta boðsund í Murmansk. „Vinir og fjölskylda hafa stutt mig og hvatt mig áfram til að fara. Það er einhvern veginn þannig að í sjósundinu standa allir saman,“ segir hún.

Spurð út í þátttöku í næsta skipulagða sjósundi að þessu loknu gefur hún ekkert upp en segir „eina markmiðið er að halda áfram að hafa gaman“.

Hápunktur hátíðarinnar

Boðsundið um Golfstrauminn er hápunktur tveggja daga hátíðar í tilefni aldarafmælis borgarinnar Murmansk. Í boðsundinu verður synt m.a. í Suður-Afríku, á Bahama-eyjum, í New York, Írlandi, Bretlandi, Frakklandi, Spáni, Íslandi, Danmörku og síðan mun sundið enda í Murmansk þar sem Birna Hrönn verður ein af tæplega 40 sundmönnum sem koma allstaðar að úr heiminum til að ljúka boðsundinu. Boðsundið fer fram á ákveðnum tíma í fyrrnefndum löndum.
Í sumar ferðaðist Birna Hrönn víða um land, synti í …
Í sumar ferðaðist Birna Hrönn víða um land, synti í ám og vötnum og henti sér ísköld í einn af fossunum í Fiská.
Kuldi og kraftur. Svartifoss var einn af þeim sem Birna …
Kuldi og kraftur. Svartifoss var einn af þeim sem Birna Hrönn baðaði sig í.
Birna Hrönn Sigurjónsdóttir leggst til sunds í íslenskum firði.
Birna Hrönn Sigurjónsdóttir leggst til sunds í íslenskum firði.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert