Banaslys á Sólheimasandi

mbl.is/Sverrir

Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöld um alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi á Sólheimasandi skammt vestan við Pétursey. Erlendur karlmaður lést er hann varð fyrir bifreið sem ekið var vestur Suðurlandsveg.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að ökumaður bifreiðarinnar hafi verið erlendur ferðamaður. Maðurinn var í tíu manna hópi á tveimur bifreiðum. Bifreiðarnar höfðu verið stöðvaðar í vegkantinum og fólkið farið út úr þeim.

Ekki liggur fyrir með hvaða hætti slysið bar að en slysið og aðdragandi þess er í rannsókn hjá lögreglunni á Suðurlandi. Fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa kom á staðinn. Þjóðveginum var lokað í um þrjár klukkustundir á meðan vettvangsrannsókn fór fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert