Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í gær að frá og með 1. október 2016 hækki fæðisgjald í leik- og grunnskólum borgarinnar um 100 krónur á dag. Hækkunin mun alfarið renna til skólamötuneyta í kaup á hráefni.
Fram kemur í tilkynningu frá borgaryfirvöldum, að með þessu ætti að skapast svigrúm til að auka gæði matarins verulega.
Þá segir, að breytingin hafi það í för með sér að fæðisgjald vegna barna í leikskóla sem séu skráð í sjö til níu klukkustundir á dag hækki úr 8.320 krónum á mánuði í 10.480 krónur á mánuði.
Verð fyrir máltíðir nemenda í grunnskólum borgarinnar hækki úr 7.100 krónum í 9.270 á mánuði.
„Framlag Reykjavíkur verður með þessu sambærilegt framlögum sveitarfélaga sem leggja mest í hráefnisframlög til skólamötuneyta. Leikskólagjöld og önnur gjöld vegna skólagöngu barna verða áfram með þeim lægstu á landinu,“ segir í tilkynningu.