Heilbrigðisráðherra opnaði nýja götu

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra ásamt Álfheiði Ingadóttur og Jóni Kristjánssyni, …
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra ásamt Álfheiði Ingadóttur og Jóni Kristjánssyni, sem eru forverar Kristjáns í heilbrigðisráðuneytinu. mbl.is/Eggert

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra opnaði í dag nýja götu sem er fyrsti áfangi í uppbyggingu í Hringbrautarverkefninu við Landspítala við Hringbraut.

Fulltrúar frá sjúklingasamtökum tóku þátt í athöfninni með þvi að opna götuna formlega með ráðherra. Að því loknu gengu fulltrúar sjúklingasamtaka með ráðherra eftir nýju götunni sem liggur frá Barónsstíg að K-byggingu Landspítala samhliða nýju sjúkrahóteli sem tekið verður í notkun 2017, vð því er fram kemur í tilkynningu frá Nýjum Landspítala (NLSH).

Borðinn klipptur.
Borðinn klipptur. mbl.is/Eggert

„Bygging sjúkrahótelsins gengur vel og er hluti af fyrsta áfanga uppbyggingar Nýs Landspítala við Hringbraut. Í sjúkrahótelinu verða 75 herbergi og með tilkomu þess breytist aðstaða fyrir sjúklinga og aðstandendur mikið til batnaðar,“ segir ennfremur.

Nánar verður fjallað um málið í myndskeiði sem verður birt eftir hádegi.

Fjölmenni kom saman við athöfnina í dag.
Fjölmenni kom saman við athöfnina í dag. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka