Búið er að upplýsa vopnaða ránið sem var framið í verslun 10-11 á Hjarðarhaga í Vesturbæ Reykjavíkur rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Að sögn Jóhanns Karls Þórissonar aðstoðaryfirlögregluþjóns er þessa stundina verið að ljúka yfirheyrslum yfir manninum, sem áður hefur komið við sögu lögreglu.
Maðurinn kom inn í verslun 10-11 með klút fyrir vitum sér í gærkvöldi og ógnaði starfsfólki með hnífi. Rannsóknarlögregla og tæknideild lögreglunnar var samstundis send á vettvang og glöggir lögreglumenn könnuðust við manninn á myndbandsupptökum úr versluninni. Maðurinn var handtekinn seint í gærkvöldi og látin gista í fangageymslu í nótt.
Hann verður látinn laus að loknum yfirheyrslum og fer málið í hefðbundið ferli innan dómskerfisins.
Frétt mbl.is: Vopnað rán á Hjarðarhaga