Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hefur lagt fram kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem sem grunaður er um alvarlega líkamsárás og kynferðisbrot gegn konu í Eyjum síðastliðinn laugardag.
Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út í dag. Á Facebook-síðu lögreglunnar kemur fram að farið hafi verið fram á að að Héraðsdómur Suðurlands framlengi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum um viku á grundvelli rannsóknarhagsmuna málsins.
Frétt mbl.is: Úrskurðaður í gæsluvarðhald
„Unnið er að fullum þunga í rannsókn á málinu og verið að yfirheyra alla sem hugsanlega geta veitt upplýsingar í málinu. Þá er einnig unnið úr öðrum gögnum sem borist hafa lögreglunni og tengjast málinu,“ að því er segir á Facebook síðu lögreglunnar..
Konan var flutt var með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur eftir að hafa fundist nakin með mikla áverka í andliti við hlið fata sinna og leikur grunur á að brotið hafi verið gegn henni kynferðislega. Líkamshiti konunnar mældist 35,3 gráður er hún fannst og sagði í áverkavottorði að hún hafi verið „afmynduð í framan“.
Frétt mbl.is: Grunaður um kynferðisbrot
Sögð hafa fundist nakin í húsagarði