Edda Heiðrún látin

Edda Heiðrún Backman.
Edda Heiðrún Backman.

Edda Heiðrún Backm­an, leik­ari, leik­stjóri og mynd­list­armaður, lést á Land­spít­al­an­um í Foss­vogi 1. októ­ber 58 ára að aldri. Edda Heiðrún fædd­ist á Akra­nesi 27. nóv­em­ber 1957. For­eldr­ar henn­ar voru Jó­hanna Dag­fríður Arn­munds­dótt­ir og Hall­dór Sig­urður Backm­an.

Hún lauk stúd­ents­prófi frá MS 1978 og leik­ara­prófi frá Leik­list­ar­skóla Íslands 1983.

Edda Heiðrún átti far­sæl­an fer­il sem leik­ari fram til árs­ins 2004 en þá hafði hún greinst með MND-sjúk­dóm­inn, sem varð þess vald­andi að hún hætti að leika. Þá sneri hún sér að leik­stjórn og leik­stýrði nokkr­um fjölda sýn­inga bæði í Borg­ar­leik­hús­inu og Þjóðleik­hús­inu. Árið 2007 opnaði Edda blóma­búðina Súkkulaði og rós­ir, þar sem hún bauð upp á heims­ins besta súkkulaði og fal­leg­ustu rós­ir.

Árið 2008 fann Edda Heiðrún sköp­un­ar­krafti sín­um nýj­an far­veg þegar hún hóf að mála með munn­in­um, bæði vatns­lita­mynd­ir og olíu, mynd­ir af fugl­um og fólk­inu sem  var henni kært. Haustið 2009 var Eddu boðin aðild að alþjóðleg­um sam­tök­um munn- og fót­mál­ara, „The Associati­on of Mouth and Foot Pain­ters“. Á ferli sín­um sem mynd­list­armaður hélt hún fjölda sýn­inga, bæði í Reykja­vík og út um land, auk þess sem hún átti mynd­ir á sýn­ing­um er­lend­is.

Edda Heiðrún gerðist ötul bar­áttu­kona fyr­ir rétt­ind­um fatlaðs fólks og lagði mikið af mörk­um þegar hún, ásamt Holl­vina­sam­tök­um Grens­ás, stóð fyr­ir lands­söfn­un til upp­bygg­ing­ar og end­ur­bóta  á Grens­ás­deild und­ir yf­ir­skrift­inni Á rás fyr­ir Grens­ás. Þar söfnuðust á annað hundrað millj­ón­ir króna.

Þá var Edda mik­ill talsmaður um­hverf­is­vernd­ar og ís­lenskr­ar nátt­úru. Hún stofnaði fé­lags­skap­inn Rödd nátt­úr­unn­ar snemma á þessu ári, sem er ætlað það hlut­verk að veita nátt­úr­unni rödd og rétt­indi. Sér­stak­lega var henni hug­leik­in bar­átt­an fyr­ir stofn­un há­lend­isþjóðgarðs á miðhá­lendi Íslands.

Edda Heiðrún hef­ur hlotið fjölda viður­kenn­inga fyr­ir list sína. Þris­var sinn­um hlotnuðust henni Íslensku sviðslist­ar­verðlaun­in, þ.á m. heiður­sverðlaun Grím­unn­ar 2015. 2003 hlaut hún Íslensku kvik­mynda­verðlaun­in, Edd­una. 2006 var hún borg­ar­listamaður Reykja­vík­ur og 2008 heiðraði Alþingi hana með því að samþykkja hana í hóp heiðurslista­manna.

Edda Heiðrún læt­ur eft­ir sig tvö börn, Arn­mund Ernst leik­ara og Unni Birnu mennta­skóla­nema.

Edda Heiðrún Backman.
Edda Heiðrún Backm­an. Ólaf­ur Már Svavars­son.
mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert