Féll í 80 gráðu heitan hver

TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar.
TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF GNA, lenti fyrir skömmu við Landspítalann með karlmann í kringum sjötugt sem brenndist illa eftir að hafa fallið í 80 gráðu heitan hver við hlið Gömlu laugarinnar við Flúðir.

Að sögn Landhelgisgæslunnar hafði þyrlan verið á æfingu á Snæfellsnesi þegar beiðni barst um aðstoð og gat hún því farið tiltölulega fljótt á staðinn.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð þyrlu um klukkan 20:50 í kvöld vegna mannsins. 

„Þyrla Landhelgisgæslunnar var á nætursjónaukaæfingu á Snæfellsnesi er kallið barst. Hélt hún þá þegar af stað til eldsneytistöku og síðan var haldið á slysstað. Sjúkrabíll ók til móts við þyrluna við Skeiðavegamót og var hinn slasaði færður þar yfir í þyrluna,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Þyrlan lenti við Landspítala – háskólasjúkrahús klukkan 22:15 í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert