Hæstiréttur hefur fellt niður mál gegn Hannesi Smárasyni sem oft hefur verið nefnt Sterling-málið. Málið er fellt niður vegna gífurlegra tafa hjá saksóknara. Hannes hafði verið sýknaður í héraðsdómi, en málinu var áfrýjað af ríkissaksóknara og flutt í þessari viku. Hannes hafði verið ákærður fyrir fjárdrátt, en til vara umboðssvik vegna millifærslu upp á tæplega þrjá milljarða af bankareikningi FL Group á eignarhaldsfélagið Fons árið 2005.
Í dómi málsins segir að meint brot hafi verið framið 25. apríl 2005. Rannsóknin hafi átt rót sína að rekja til fundar saksóknara efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og skattrannsóknarstjóra ríkisins 29. janúar 2009. Hófst rannsókn í kjölfarið. Lögregluskýrsla var aftur á móti fyrst tekin af ákærða 21. janúar 2011, tæplega tveimur árum eftir að rannsókn hófst.
„Engin skýring er fram komin á því hvers vegna ákæra var ekki gefin út fyrr en 28. október 2013, rúmum fjórum árum eftir upphaf rannsóknar. Mál þetta dróst jafnframt úr hömlu hjá ákæruvaldinu eftir að héraðsdómur var upp kveðinn 18. febrúar 2015 og dómsgerðir afhentar því og þar til málsgögnum var skilað til Hæstaréttar 9. ágúst 2016. Ákæruvaldið hefur ekki veitt haldbærar skýringar á því hvers vegna það tók svo langan tíma að útbúa málsgögn og skila þeim til Hæstaréttar,“ segir í dómnum.
Rifjar Hæstiréttur upp hversu langan tíma málið hafi tekið. „Þegar málsgögnin loks bárust réttinum voru liðin meira en ellefu ár frá ætluðu broti, nærri átta ár frá upphafi rannsóknar og rúmir sautján mánuðir frá því að ríkissaksóknari gaf út áfrýjunarstefnu til að fá hnekkt héraðsdómi um sýknu ákærða.“
Þá hafi ákæruvaldið þurft frest, til að skila greinargerð til Hæstaréttar, um þrjár vikur. Að þeim tíma liðnum hafi engin greinargerð borist en samt hafi ekki verið óskað eftir lengri fresti. „Því fer fjarri að þessi vanræksla ákæruvaldsins um skil á greinargerð hafi verið réttlætt. Samkvæmt þessu verður fallist á kröfu ákærða um að málið verði fellt niður fyrir Hæstarétti,“ segir í dóminum.
Allur áfrýjunarkostnaður er greiddur af ríkissjóði auk málsvarnarlauna verjanda Hannesar upp á 620 þúsund krónur.
Málið snerist um viðskipti FL Group með flugfélagið Sterling. Árið 2005 keypti FL Group flugfélagið af Fons fyrir 15 milljarða, en þá hafði verðmiði félagsins hækkað um 11 milljarða á sjö mánuðum. Í kringum viðskiptin fór þriggja milljarða millifærsla af reikningum FL Group sem aldrei hefur komið skýring á hvert fór.
Í tilkynningu sem Ragnhildur Geirsdóttir, sem var forstjóri FL Group frá því í júní 2005 til október sama ár, sendi frá sér í kjölfar skýrslu rannsóknanefndar Alþingis árið 2010, segir hún að ástæða uppsagnar sinnar hafi meðal annars verið ósætti við Hannes Smárason vegna umræddrar millifærslu. Auk hennar hættu sex stjórnarmenn í félaginu á þessum tíma.
Sagði Ragnhildur að um það leyti sem hún tók við starfi forstjóra hafi hún fengið vitneskju af því að Hannes hafi í apríl sama ár látið millifæra tæplega 3 milljarða af reikningum félagsins til Kaupþings í Lúxemborg. Engar skýringar, lánaskjöl eða önnur gögn voru til um málið og millifærslan var án vitneskju annarra stjórnarmanna félagsins.
Við aðalmeðferð málsins var fátt um svör hjá Hannesi um millifærsluna og voru þau nær undantekningarlaust á þann veg að hann kannaðist ekki við skjöl, vissi ekkert hvernig þau væru tilkomin og myndi ekki eftir tölvupóstum sem undir hann voru bornir.