Settur héraðssaksóknari hefur hafið rannsókn á ásökunum á hendur starfsmanni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en viðkomandi er gefið að sök að hafa misbeitt lögregluvaldi við rannsókn í tilteknu máli.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Þar segir að málið sé til meðferðar hjá héraðssaksóknara og að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu muni ekki tjá sig um rannsókn þess.