Landsnet reiknar með að sveitastjórn Þingeyjarsveitar taki framkvæmdaleyfi vegna Þeistareykjalínu fyrir að nýju og fari yfir þær athugasemdir sem fram komu í úrskurði Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Úrskurðarnefndin hafnaði í dag kröfu Landverndar um ógildingu framkvæmdaleyfis sveitastjórnar Þingeyjarsveitar um framkvæmdaleyfi fyrir Kröflulínu 4, en felldi úr gildi framkvæmdaleyfi sveitarfélagsins fyrir Þeistareykjalínu .
Við það fellur niður stöðvun á hluta línuleiðarinnar og hefur Landsnet því gild framkvæmdaleyfi á allri fyrirhugaðri línuleið Kröflulínu 4. „Þá er mögulegt að halda áfram framkvæmdum sem hafnar voru fyrir bráðabirgðaúrskurð um stöðvun en eftir er að ljúka eignarnámsmálum í landi Reykjahlíðar,“ segir í tilkynningu á vef Landsnets.
Sú ákvörðun nefndarinnar að fella framkvæmdaleyfi Þeistareykjalínu 1 úr gildi svipi hins vegar til úrskurðar vegna framkvæmdaleyfis Skútustaðahrepps vegna Kröflulínu 4, en framkvæmdir á svæðinu voru ekki hafnar.
„Landsnet reiknar með að sveitafélagið taki málið fyrir að nýju og fari yfir þær athugasemdir sem fram komu í úrskurðinum.“