Björgunarsveitir á Suðurlandi eru að sækja örmagna rjúpnaskyttu á Miðdalsfjall rétt við Laugarvatn.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var kallað eftir aðstoð vegna rjúpnaskyttu á fjallinu. Hann hafði tapað áttum þar og týnst en skyldmenni fundið hann.
Vegna þess hve þreyttur og kaldur maðurinn var orðinn var sent eftir björgunarsveitum sem eru nú að aðstoða við að koma honum niður.