Íslandsmótið í skrafli verður haldið á bókasafni Menntaskólans í Reykjavík um helgina, á morgun og sunnudag. Mæting er klukkan 9.45 báða dagana og standa leikar til klukkan 18.
Leiknar verða fimm umferðir hvorn dag með hádegishléi að þremur umferðum loknum. 22 eru skráðir til leiksm en þetta er í fjórða skiptið sem mótið er haldið. Í fyrra sigraði Vilhjálmur Þorsteinsson, höfundur netskrafl.is, með glæsibrag.
Skráning á mótið fer fram á Facebook-síðu Skraflfélagsins en henni lýkur á miðnætti.